Heimasíða Veðurstofu Íslands
       Almyrkvinn 2026        Fyrirbæri        Sólmyrkvatöflur        Heimildir        Skýjahula        Skýringar

Skýringar

Þessi vefur hefur að geyma ýmsar upplýsingar um sólmyrkva á Íslandi.

Mikið af gögnunum, þ.á.m. tímasetningar sólmyrkva hefur verið safnað af vef NASA. Einnig hefur vefur helsta sólmyrkvasérfræðings NASA, Fred Espenak (EclipseWise.com), komið að góðum notum. Þar má nefna gagnvirk kort fyrir tiltekna sólmyrkva, t.d. fyrir almyrkvann 12. ágúst 2026. Einnig hafa töflur fyrir hverja öld nýst vel. Þá má nefna sólmyrkva-leitarvél NASA fyrir tiltekinn stað.

Sólmyrkvatöflur

Sólmyrkvatöflurnar eru flestar með 22 dálkum, sem er skipt með grænum dálki. Vinstra megin eru upplýsingar fyrir tiltekinn viðmiðunarstað, sem er skammstafaður í öðrum dálki. Hægra megin eru upplýsingar sem eiga við allt Ísland, og í síðustu tveimur dálkunum er gefið upp hvar almyrkvar og hringmyrkvar eru lengstir á landinu.

Sumar línurnar eru litaðar, og eru almyrkvar oftast bleikir, hringmyrkvar appelsínugulir og stórir deildarmyrkvar ljósbláir. Sumar tölur í töflunum eru auðkenndar með (s) eða (r) og er þar vísað til að sólmyrkvinn endi við sólsetur (s) eða hefjist við sólris (r).

Með því að smella á dagsetninguna er farið yfir á ítarupplýsingar, yfirleitt kort á vef Fred Espenak.

Dálkar sólmyrkvataflnanna

1. dagur: Fyrst er dagsetning sólmyrkvans (ár-mánuður-dagur). Hér er miðað við Gregoríanska tímatalið eftir október 1582, en eldri dagsetningar miðast við Júlíanska tímatalið fyrir október 1582. Þetta er til samræmis við birtar dagsetningar hjá NASA. Á Íslandi tók Gregoríanska tímatalið ekki gildi fyrr en í nóvember árið 1700 og veldur þetta nokkru misræmi milli þessara dagsetninga og dagsetninga í íslenskum annálum fyrir árin 1582-1700.

2. sta: Viðmiðunarstaður, sem tímasetningar o.fl. miðast við. Oftast er miðað við Reykjavík, nema þegar myrkvinn sést ekki frá Reykjavík. Fyrir almyrkva og hringmyrkva er viðmiðunarstaður þar sem almyrkvinn sést: (Rvk) Reykjavík, (Ves) Vestmannaeyjar, (Ing) Ingólfshöfði, (Fon) Fontur á Langanesi, (Bja) Bjargtangar, (Ger) Gerpir, (Kog) Kögur á Hornströndum, (Kot) Kötlutangi, (Sto) Stokknes, (Rne) Reykjanestá á Reykjanesskaga, (Kja) Kjalarnes.

3. teg: Tegund sólmyrkva, P: deildarmyrkvi (e. partial), A: hringmyrkvi (e. annular), T: almyrkvi (e. total). Almyrkvar og hringmyrkvar fá yfirleitt litaðar línur í töflunum.

4. upphaf myrkva C1: Tímasetning upphafs sólmyrkva á viðmiðunarstað. Allar tímasetningar eru miðaðar við heimstíma (UTC), eins og klukkan er stillt á Íslandi um vora daga.

5. sh: Sólarhæð við upphaf myrkva (í gráðum yfir sjónbaug).

6. upphaf almyrkva C2: Tímasetning upphafs almyrkva eða hringmyrkva á viðmiðunarstað.

7. hámark myrkva: Tímasetning hámarks sólmyrkva á viðmiðunarstað.

8. sh: Sólarhæð við hámark.

9. átt: Sólarátt við hámark (í gráðum réttsælis frá norðri).

10. lok almyrkva C3: Tímasetning loka almyrkva eða hringmyrkva á viðmiðunarstað.

11. lok myrkva C4: Tímasetning loka sólmyrkva á viðmiðunarstað.

12. sh: Sólarhæð við myrkvalok.

13. stærð M: Stærð sólmyrkva þ.e. hlutfall þvermáls sólar sem tunglið skyggir á við hámark. Við almyrkva og hringmyrkva er þetta hlutfall þvermáls tungls á móti þvermáli sólar.

14. myrk (%): Myrkvun við hámark á viðmiðunarstað.

15. lengd almyrkva: Lengd almyrkva eða hringmyrkva á viðmiðunarstað í mínútum og sekúndum.

Aftan við græna dálkinn eru tölur sem eiga við allt Ísland.

16. teg: Tegund mesta myrkva á landinu, P: deildarmyrkvi, A: hringmyrkvi, T: almyrkvi.

17. min stærð M: Minnsta stærð sólmyrkva við hámark á landinu.

18. max stærð M: Mesta stærð sólmyrkva á landinu.

19. min myrk (%): Minnsta myrkvun (%) sólmyrkva við hámark á landinu.

20. max myrk (%): Mesta myrkvun (%) sólmyrkva við hámark á landinu.

21. lengsti almyrkvi: Lengd lengsta almyrkva eða hringmyrkva á landinu í mínútum og sekúndum.

22. staður lengsta almyrkva: Staður á landinu með lengsta almyrkvann eða hringmyrkvann.

Höfundur

Skriftur til að afla gagna, vinna úr hráum gögnum og setja upp vefsíðurnar voru samdar af undirrituðum.
Ábendingar um villur og annað sem betur má fara eru vel þegnar.

Þórður Arason, (arason@hergilsey.is), 1. apríl 2018.